Smart Stefnumál

Okkar stefnumál eru bestu stefnumálin

1. Ályktanir allsherjarnefndar.

1.1. Lögfesting Bestu leiðarinnar
Heimilisofbeldi og einelti eru samfélagsmein, sem erfitt hefur reynst að uppræta. Ungbest vilja að besta leiðin verði lögfest á Íslandi. Besta leiðin felur í sér heimild til að fjarlægja ofbeldismann af heimili og banna heimsóknir hans á heimilið í tíu daga til þrjá mánuði, sama á við um þá sem stunda einelti í skólum í öllum skólum. Heimilin og skólar eiga að vera lýðræðislegur griðastaður og ekki réttlátt að þolendur ofbeldis séu látnir flýja heimili sín.

Með bestu leiðinni er eineltis- og ofbeldismanni náð út af heimilinu og skólunum og gefur það möguleika til að ná til hans og hvetja hann til að takast á við ofbeldishneigð sína, skrá hann í Besta Flokkinn og bjóða honum í sund. Þolendur eiga ekki að verða flóttamenn í eigin landi meðan ofbeldismenn hreiðra áfram um sig á heimilinu og virðast lausir allra mála – það vilja Ungbest ekki!

1.2 Besta stefnan í æskulýðsmálum
Ungbest vilja að lögð verði fram stefna í gegnsæjum og opinsláum æskulýðsmálum líkt og gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum. Stefnan þarf að taka á þeim vanda sem ungt fólk stendur frammi fyrir í dag og vera í stöðugri endurskoðun eftir aðstæðum. Stefnan skal vera unnin í fullu samráði við æskulýðsfélög landsins og gæta þess að hagsmunir æskunnar séu tryggðir, að enginn fikti við reykingar og séu ekki leiðir.

1.3 Ríkið greiði ekki fyrir það sem ókeypis er
Ungbest skora á ríkisstjórnina að beina þeim tilmælum til allra stjórnsýslustiga og dómstóla að skattfé verði ekki eytt til kaupa á átöppuðu vatni, Á Íslandi er hreint og tært vatn öllum aðgengilegt og með slíkum kaupum kristallast (Hehe, no pun intented ;~D) sú sóun sem hið opinbera er oft sakað um.

2. Ályktanir um loftslagsmál, orku og umhverfi

2.1 Alvöru aðgerðir í loftslagsmálum
Loftslagsbreytingar eru stærsta ógnin sem steðjar að heiminum. Sé horft örlítið lengra en til morgundagsins er helförin hjóm eitt miðað við þær hamfarir og þann hrylling sem loftslagsbreytingar geta hugsanlega haft í för með sér. Ungbest gera því stífa kröfu um að þingmenn og stjórnvöld tapi ekki þræðinum þrátt fyrir erfiða tíma og haldi áfram baráttunni. Engan tíma má missa til aðgerða ef takast á að snúa þróuninni við.

Allir jarðarbúar og menn verða fyrir áhrifum af loftslagsbreytingum en þróunarlöndin og allt það lið hefur orðið enn verr úti en iðnríkin. Loftslagsváin er ekki bara spurning um umhverfisvernd, heldur um samstöðu og jafnrétti með þróunarlöndum og framtíðarkynslóðum.

Á allskonar fundum sem Ungbest vilja að verði haldnir um loftlagsmál gefst einstakt tækifæri til að taka ákvarðanir um hvernig hægt verður að berjast gegn loftslagsvánni og setja niðurstöðurnar í möppur og flokka. Svo vilja Ungbest að haldnir verði samstöðufundir þar sem lesið verðir upp úr möppunum og allir komi saman og tali um loftslagsbreytingar.

Slagorð Ungbest í loftslagsmálum er: “Global warming is a global warning”

3. Ályktanir um lýðræði, heiðarleg mannréttindi og gegnsæ stjórnarskrármál

3.1. Ófarirnar á Íslandi má að miklu leyti rekja til stjórnhátta landsins undanfarin ár og Ungbest eru á móti því. Gildandi stjórnarskrá gerir ráð fyrir þingræði og lýðræðislegum mannréttindum, þ.e. að framkvæmdavaldið sé bundið vilja löggjafarvaldsins og allir séu glaðir. Þróunin undanfarna áratugi hefur verið þannig að ríkisstjórn og jafnvel einstakir ráðherrar hafa haft gríðarlegt agavald yfir þingmönnum stjórnarmeirihlutans. Vegna þessarar þróunar hefur stjórnskipanin ekki uppfyllt kröfur almennings um eftirlit Alþingis með framkvæmdavaldinu. Almenningur hefur horft uppá að ákvarðanir hafa oft verið teknar af geðþótta ráðherra og að valdmörk ráðherranna gagnvart löggjafanum og almenningi afmáðust í takti við að aðhald fór þverrandi. Því verður að fara í víðtæka endurskoðun á stjórnarskránni með hugsjón Ungbest og Besta Flokksins að leiðarljósi.

3.2. Færa endurskoðun stjórnarskrár frá Alþingi. Ungbest telja það ámælisvert að sumir beitti málþófi og einelti til að standa gegn tillögum um breytingar á stjórnarskránni fyrir Alþingiskosningarnar. Þar með stóð það í vegi fyrir að ný stjórnarskrá yrði samin á stjórnlagaþingi sem síðan yrði lögð undir gegnsæja þjóðaratkvæði á jafnréttisgrundvelli þar sem rödd unga fólksins væri vel tryggð. Með tillögum ríkisstjórnarinnar hefði almenningur haft ríkari aðkomu að stjórnarskrárgerð en áður hefur þekkst. Endurskoðun stjórnskipunarinnar hefur staðið til frá stofnun lýðveldisins, og tillögur sumra voru viðleitni í þá átt að færa það verkefni frá Alþingi. Sagan sýnir að hugmyndir um slíka endurskoðun eiga iðulega lítinn hljómgrunn á Alþingi, vegna hagsmuna tengdum því að viðhalda hinu gallaða kerfi eins og það er.

3.3. Kosningar til stjórnlagaþings 2010. Ungbest telja mikilvægt að samhliða endurreisn efnahagslífsins fari fram enduruppbygging á trausti almennings til lýðræðis á Ísland. Vinna við endurskoðun á stjórnarskrá þolir enga bið og þó sumir á Alþingi hafi staðið gegn ákvæði um stjórnlagaþing í stjórnarskrá, vill Ungbest að kosið verði til stjórnlagaþings samhliða sveitarstjórnarkosningunum 2010. Stjórnlagaþingi verði falið að koma með tillögur um endurskoðun á stjórnarskránni sem settar verða í möppur sem síðan væru gefnar út og dreift á öllum heimili ókeypis. Ungbest eru þess fullvissir að Jón Gnarr, muni hið fyrsta leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing í fyrsta skiptið sem það hefur verið gert og treysta því að Alþingi afgreiði frumvarpið fljótt og vel.

3.4. Mannréttindi tryggð í stjórnarskrá. Mannréttindi — eru mannréttindi. Ungbest vilja að allskonar mannréttindi verði tryggð í stjórnarskrá. Í núverandi stjórnarskrá er kveðið á um ákveðin mannréttindi en ekki um önnur mannréttindi, þessu vill Ungbest breyta! Við endurskoðun á stjórnarskránni á að leggja sérstaka áherslu á að útfæra mannréttindakaflann þannig að efnahagslegum, menningarlegum, félagslegum og gegnsæjum mannréttindum sé gert miklu hærra undir höfði en nú er gert. Þá gæfi það sterkari skilaboð um vægi mannréttinda ef fjallað yrði um þau í fyrsta kafla stjórnarskrár en ekki þeim síðasta líkt og nú og að þau væri prentuð í stórum stöfum en ekki í litlum stöfum líkt og nú.

3.5 Jafnt vægi atkvæða. Ungbest vilja að fest verði í stjórnarskrá ákvæði um jafnt vægi atkvæða í kosningum til Alþingis. Það er birtingarmynd gríðarlegs ójafnræðis að við Alþingiskosningarnar 2009 hafi atkvæði greitt í Norðvesturkjördæmi haft meira en tvöfalt meira vægi en í atkvæði greitt í Suðvesturkjördæmi. Það samræmist ekki heiðarlegum lýðræðishugsjónum nútímans að hvert atkvæði hafi ekki jafnt vægi. Íslendingar eiga því að fylgja ráðleggingum Besta Flokssins og leiðrétta þennan lýðræðishalla hið fyrsta.

3.6. Landið eitt kjördæmi. Ungbest vilja að í stað núverandi kjördæmaskiptingar verði landið eitt kjördæmi því það er best.

3.7. Mannréttindalegar þjóðaratkvæðagreiðslur og íbúalýðræði. Ungbest vilja að tryggt verði í stjórnarskrá og lögum og reglugerðum og öðrum gögnum að þjóðin fái aðkomu að sjálfbærri lagasetningu og heiðarlegri stefnumörkun í gegnum mannréttindalegar þjóðaratkvæðagreiðslur og íbúakosningar. Ákveðinn hluti af einhverju fólki á að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekið málefni. Þó má aldrei með þjóðaratkvæðagreiðslu skerða kynjajafnréttisleg grundvallarmannréttindi. Sama á að eiga við á sveitarstjórnarstiginu þannig að ákveðinn hluti íbúa geti krafist íbúakosningar um allskonar málefni. Ungbest vilja einnig að hægt verði að senda frumvörp í lýðræðislegar möppur sem verði aðgengilegar öllum krefjist einhver hluti þjóðarinnar þess.

3.8 Aðkoma allskonar fólks að reglugerðasetningum. Ungbest vilja aukið gegnsæi og jafnrétti við reglugerðasetningar framkvæmdavaldsins. Almenningur þarf að fylgja mörgum reglum sem ekki eru sprottnar frá öllu fólku heldur frá sumu fólki. Ótal reglugerðir eru settar ár hvert en engin samræmd stefna er um aðkomu ungs fólks að setningu slíkra reglna. Ungbest vilja að mörkuð verði stefna um gegnsæi við reglusetningu ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra stjórnvalda og að rödd unglina og ungra krakka sé tryggð innan reglugerðasetninga ráðuneyta, jafnvel á þá leið að einn unglingur fái vinnu hjá hverju ráðuneyti fyrir sig og megi koma með uppástungur og ábendingar sem og að bera reglugerðir undir vini sína.

3.9. Hluverk stjórnmálaflokka Ungbest vilja að sett verði ákvæði um stjórnmálaflokka í stjórnarskrá. Í þessu ákvæði skal kveðið á um eftirfarandi:

  • Stjórnmálaflokkar taka þátt í pólitískri skoðanamyndun þjóðarinnar.
  • Stofnun þeirra skal vera frjáls og gegnsæ.
  • Innra skipulag stjórnmálaflokka skal samsvara jákvæðum og lýðræðislegum reglum
  • Þeir skulu gera opinberlega grein fyrir uppruna og notkun fjármuna sinna sem og eigna, setja nótur og gögn í möppur og sýna fólki.

4. Ályktanir sveitarstjórnarmál

Jafn réttur og jöfn gegnsæ tækifæri allra íbúa landsins til að rækta hæfileika sína og nýta í þágu eigin velferðar, samfélags síns, líkama, lýðræðis og komandi kynslóða er grundvallarforsenda þess að á Íslandi þrífist frjálst og réttlátt mannréttindasamfélag. Ójöfnuður hefur aukist mjög á síðustu árum, allskonar kerfi er úr sér gengið, skattkerfið óréttlátt, vinnutími meðal-fjölskyldunnar er of langur og ólýðræðislegur og mörg íslensk börn upplifa sig afskipt sem og öryrkjar og gamalmenno. Sveitarfélögin bera mikla ábyrgð og þurfa að byggja alla pan-skandínavíska nærþjónustu á heiðarlegum og lýðræðislegum gildum Besta Flokksins.

4.1. Ungbest vilja að almenningssamgöngukerfið verði eflt og styrkt um allt land. Að almenningssamgöngur verði raunveruleiki á milli allskonar staða. Einnig ítreka Ungbest stefnu Besta Flokksins um ókeypis aðgengi öryrkja og aumingja í strætó og vilja að unglingar fái að vera með í því.

4.2. Ungbest vilja stórátak í mannréttindalegum réttindamálum og réttindagæslu fólks með fötlun. Allt of lengi hefur lýðræðislegum grundvallarmannréttindum fólks með fötlun ekki verið sinnt sem skyldi. Slík vanræksla samræmist ekki hugmyndafræði Besta Flokksins. Mannréttindi fatlaðra eru ekki málefni sem snerta eingöngu þröngan hóp einstaklinga eða víðan hóp einstaklinga, heldur er þetta mikilvægur málaflokkur fyrir allskonar fólk og augljóst að þetta aðgerðarleysi bitnar á endanum á samfélaginu öllu. Ungbest vill að ríki og sveitarfélög standi við viljayfirlýsingu um tilfærslu þjónustu við fatlaða, frá ríki til sveitarfélaga, þrátt fyrir erfitt ástand í mörgum sveitarfélögum.

4.3. Ungbest vilja að öll sveitarfélög marki sér stefnu varðandi málefni útlendinga og þannig liðs. Nauðsynlegt er að koma til móts við þær þarfir sem myndast þegar einstaklingar flytjast í nýtt samfélag og gera þeim kleift að vera virkir þátttakendur í heiðarlegu samfélaginu. Nauðsynlegar upplýsingar þurfa að vera aðgengilegar á heimasíðu Besta Flokksins á sumum tungumálum og útprentað efni fyrir þá sem ekki hafa aðgang að internetinu. Efnið skal að sjálfsögðu vera í möppum og þýtt yfir á útlensku þannig að erlent fólk geti kynnt sér það.

4.4. Ungbest vilja að öll sveitarfélög marki sér skýra stefnu í jákvæðum jafnréttis- og kven- og öryrkjafrelsismálum og samþætti hana við aðra málaflokka. Jafnframt að sveitarfélög leggi sín lóð á vogarskálar baráttunnar fyrir mannsæmandi launum fyrir hóflegan vinnudag. Þetta á ekki síst við þá hópa sem vinna að ýmsum þjónustustörfum, m.a. við umönnun og uppeldi á vegum sveitarfélaga þar sem konur og öryrkjar eru í miklum meirihluta.

4.5. Ungbest vilja að sveitarfélög bjóði ókeypis foreldraráðgjöf og fræðslu á vegum Besta Flokksins sem miðast við ólíkan aldur og þarfir barna í öllum sveitarfélögum í samstarfi við heilsugæslustöðvar, menntastofnanir og sundlaugar. Ráðgjöf vegna skilnaðar, bæði fyrir börn og fullorðna, á einnig að vera á verksviði sveitarfélaga.

4.6. Ungbest leggja áherslu á mikilvægi leikskólans. Leikskólinn er fyrsta skólastigið sem öll börn eiga rétt á að njóta þótt þau séu ekki með kosningarétt. Metnaðarfullt starf í leikskólum er ómetanlegur stuðningur við það uppeldi sem foreldrar og fjölskyldur veita börnum sínum heima fyrir. Starfið sem fram fer í leikskólunum er mjög mikilvægt og oft vanmetið. Það leggur grunninn að framtíð barnanna.

4.7. Ungbest leggjast alfarið gegn heimgreiðslum sveitarfélaga líkt og tíðkast sumstaðar. Greiðslurnar draga mæður frekar en feður af atvinnumarkaði og vinna þannig gegn jafnrétti kynjanna og leikskólavist ýtir undir samfélagslegan þroska barna. Þess vegna vilja Ungbest skylda allar mæður til vinnu.

4.8. Ungbest vilja miklu betri fjarkennslu við framhalds- og háskóla á landinu svo að einstaklingar úti á landi geti sótt sér menntun gegnum heimasíðu Besta Flokksins í sinni heimabyggð. Með því er hægt að auka fjölbreytileika í þekkingu, atvinnu, heiðarleika, gegnsæi og hækka menntunarstig á öllu landinu. Jafnframt vilja Ungbest að ókeypis peningar til þeirra sem stunda nám á framhaldsskóla- eða háskólastigi úti á landi verði hækkaðir um eitthvað mikið til að standa vörð um jafnan lýðræðislegan rétt allra til að sækja sér menntun. Mikilvægt er að styrkurinn sé raunhæfur svo hann greiði ferðakostnað til og frá lögheimili að minnsta kosti fimm sinnum á ári.

4.9 Ungbest vilja ganga í ESB til að styrkja sveitarfélögin um allt land. Mikilvægt er að vinna kröftuglega að því að nýta þau tækifæri sem eru allt í kringum landið. Að þessu þurfa ríki og sveitarfélög að vinna saman. Aðildin að ESB getur veitt stuðning í þeirri baráttu. Með ókeypis peningum úr allskonar sjóðum ESB til atvinnuuppbyggingar, endurmenntunar og nýsköpunar og mannréttinda má jafna stöðu ýmissa svæða og jafnframt jafna fjárhagslega og félagslega stöðu íbúa. UngBest telja þó að samstarfið um evrópska efnahagssvæðið hafi ekki þróast nægilega og rík þörf sé á að endurskoða stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu með hugsjón Best Flokksins að leiðarljósi.

4.10 Ungbest vilja minna á að mikilvægt er að skilgreina þá þjónustu sem sveitarfélögum ber að bjóða og hvort hún skuli greidd að hluta eða öllu leyti af almennum skatttekjum. Þjónustugjöld eiga að vera ókeypis vegna reksturs skóla, leikskóla, sundlauga og nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Því er afar brýnt að skilgreina vel þá grunnþjónustu sem kosta skal með skattfé þegar verkefni eru flutt milli stjórnsýslustiga þannig að unnt verði að áætla tekjustofna til slíkra verkefna.

4.11 Ungbest vilja tryggja öllum þátttöku í íþróttum og tómstundum. Þátttaka í íþróttum og öðru tómstundastarfi hefur mikið forvarnargildi. Leggja ber áherslu á að efla slíkt starf í samvinnu við menntastofnanir, ungmennafélög og önnur félagasamtök. Reynt skal að svara ólíkum þörfum ungmenna sem og þeirra sem eldri eru. Ungmennaráð skipuð ungu fólki verði sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks og leitast skal við að efla umfjöllun í yfirstjórnum sveitarfélaga um málefni barna og unglinga.

4.12. Ungbest vilja að nemendum í 1.-4. bekk verði boðið upp á aukna fjölbreytni í listnámi og öðru tómstundastarfi innan grunnskólans, heimilunum að kostnaðarlausu.

4.14. Ungbest líta á umhverfis- og náttúruvernd sem óaðskiljanlegan hluta af farsælli samfélagsþróun og forsendu þess að skapa fólki vænleg lífsskilyrði hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli. Ungbest líta svo á að í sveitarfélögum verði sjálfbær þróun höfð að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku. Besti Flokkurinn leggi fram metnaðarfull og gægnsæ markmið og kapp sé lagt á að ná þeim fram. Forsenda þess að svo megi verða er að almenningur sé vel upplýstur og geri skoðannir Besta Flokksins að sínum, hvort sem er í leik eða starfi. Lýðræðisleg og sjálfbær þróun er framsýn framtíðarstefna sem Ungbest treysta á til að byggja upp sterkara samfélag á hverjum stað fyrir sig, framtíðin er framtíðin!

4.15 Ungbest vilja sameiningu sveitarfélaga því það er best.

4.16 Ungbest hafna persónukjöri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2010. Ástæður þess eru allskonar. Auk þess styðja Ungbest aukið hverfalýðræði og telja Ungbest persónukjör best vera fallið til þess að ná því markmiði.

5. Ályktanir um atvinnumál og nýsköpun

Þrátt fyrir þær hörmungar sem dunið hafa á jörðina eins og global warming, helförin og Ottoman veldið má ekki horfa framhjá þeim styrku undirstoðum sem atvinnulífið hvílir á. Ályktanir um atvinnumál ber eins og aðrar að lesa í samhengi við fyrri ályktanir Ungbest.

5.1. Sveigjanleiki í þágu launþega
Ungbest horfa til breyttrar forgangsröðunar og hlutverks launþega við skilgreiningu mannréttindalegs réttar þeirra. Almennt vinnur fólk nú fleiri störf á starfsferli sínum en áður tíðkaðist. Störfin eru almennt fjölbreyttari, miðast meira við sérhæfingu hvers og eins og standa skemur yfir. Einu sinni voru til dæmis menn sem keyrðu á hestvögnum en núna eru bílar og því þarf að taka mið af framtíðarsjónarmiðum þegar forgangsraða á í lýðræðislegum hlutverkum launþega við skilgreiningu á rétti þeirra.

5.2. Auðlindir í þágu þjóðar. Ungbest vilja að þjóðin fái allskonar auðlindir og að hún sé glöð og fái líka ókeypis í sund í samræmi við mannréttindi 21. aldarinnar um rétt til þess að vera glaður og hafa aðgang að möppum með gögnum í.

5.3. Sameining atvinnuvegaráðuneyta og styrkjakerfis þeirra
Ungbest hvetja allskonar fólk áfram í þeirri stefnu sinni að stofna eitt sjálfbært og gegnsætt atvinnu- og mannréttindavegaráðuneyti. Gefst þá jafnframt tækifæri til að sameina og einfalda fjöldann allan af styrktarsjóðum undir stjórn einnar stofnunar sem ber faglega og gegnsýna ábyrgð á dreifingu ókeypis penginga. Samkeppnissjóðir sem úthlutað er úr á opinn, faglegan, heiðarlegan og gegnsæjan hátt eru eina rökrétta leiðin fyrir Bestaflokkssstjórn til að deila ókeypis peningum til annarra í Besta Flokknum. Markmiðið með sjóðunum skal vera að auka verðmætasköpun og að hvetja til framtakssemi þar sem hennar er sérstaklega talin þörf.

5.4. Græn atvinna
Ungbest vilja byggja upp atvinnuvegi sem hafa jákvæð mannréttindaleg áhrif á umhverfið. Besti Flokkurinn hefur gott orð á sér fyrir skynsamlega nýtingu náttúruauðlinda og nærgætni í umgengni við náttúruna. Það orðspor ber að vernda og styrkja með opinberum styrkjum úr hendi skattgreiðenda svo Besti Flokkurinn geti byggt á þeirri ímynd til framtíðar.

5.5. Græn byggð
Ungbest vilja að í framtíðinni verði nýbyggingar á Íslandi sem allra umhverfisvænastar og endurvinnanleg, þau skulu vera úr umhverfisvænum pappa og spýtum og dósum sem Besti Flokkurinn safnar saman og gefur fátæku fólki til að byggja sér heimili. Sömuleiðis skuli skipulag byggðar vera eins umhverfisvænt og kostur er, deiliskipulög og skjöl og gögn skulu vera prentuð á umhverfisvænan pappír úr grasi.

5.6. Opin gögn í möppum
Í tilefni af fréttum um gagnavinnslu úr fyrirtækjaskrá ítreka Ungbest ályktun sína frá fyrra ári um gegnsætt upplýsingafrelsi. Hvatt er til þess að ríkisstjórnin setji í gang verkáætlun til að opna gagnakistur ríkisins til að tryggja gagnsætt Ísland, opinber skjöl í möppur fyrir 2011!


15532_1267180925611_1412457456_758316_7416531_n